Annasamt hefur verið hjá lögreglu og Landhelgisgæslu síðastliðinn sólarhring. Yfirheyrsla yfir áhöfn Bandero stendur nú yfir á varðskipinu Freyju og uppi á lögreglustöð. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, telur þó ólíklegt að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir áhöfninni, hann segist þó ekki geta útilokað neitt.Lögregla fer þó fram á brottvísun og endurkomubann yfir áhöfninni.„Svo er greinargerð farin frá lögreglunni til Útlendingastofnunar, þar sem við förum fram á að hérna, að fólkinu verði mögulega í kvöld birt hugsanleg brottvísun með endurkomubanni til tveggja ára.“Ákvörðunina segir Ásgeir vera íþyngjandi. Fjórtán áhafnarmeðlima eru ekki frá Schengen-svæðinu og verði greinargerð lögreglu samþykkt fá þau ekki inngöngu í nein lönd innan Schengen í tvö