Tvöfaldar færslur á greiðslukortum leiðréttar

Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Þetta segir Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans, í samtali við fréttastofu. Í sumum tilvikum sjást færslurnar enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.Tvíbókun var á sumum færslum á greiðslukortum viðskiptavina Arion banka og Landsbankans í dag. Þær höfðu meðal annars áhrif á ráðstöfun á greiðslukortum og lentu sumir viðskiptavinir í að eiga ekki heimild á kortunum sínum.Vandamálið ætti að vera komið í lag hjá báðum bönkum.
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum leiðréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd