Niceair flýgur hvorki frá Akureyri í sumar né komandi vetur

Ekkert verður úr fyrirhuguðu áætlunarflugi fyrirtækisins Niceair frá Akureyrarflugvelli á næstu mánuðum. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina erfiða en óvissa í alþjóðastjórnmálum og hækkandi eldsneytisverð hafi sett strik í reikninginn.Um þetta er fjallað á akureyri.net.It's nice to comeback - það er næs að snúa aftur. Þetta var yfirskrift blaðamannafundar í Flugsafni Akureyrar um miðjan desember. Þar kynnti þýskur athafnamaður áform sín um millilandaflug frá Norðurlandi og endurreisn flugfélagsins Niceair.Upphaflega flaug Niceair milli Akureyrar annars vegar og Danmerkur, Bretlands og Spánar hins vegar en stöðvaði skyndilega starfsemi og sagði erlendan samstarfsaðila sinn, fyrirtækið Hi-Fly, hafa stundað óeðlilega viðskiptahætti sem gerði þeim ómögulegt að halda rekstri áfram. Niceair var
Niceair flýgur hvorki frá Akureyri í sumar né komandi vetur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd