Regnbogafáninn mættur á tröppur Grafarvogskirkju á ný

Búið er að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar framan við Grafarvogskirkju. Þann 8. júlí var íslenski fáninn málaður yfir regnbogafána sem prýddi tröppurnar.Garðaþjónusta Sigurjóns greindi frá þessu á Facebook síðu sinni í dag.Fáninn var aðeins málaður framan á tröppurnar til þess að tryggja hálkuvarnir á þrepunum sjálfum.Íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann og var málninginn hreinsuð af daginn eftir að skemmdarverkið var framið. Til stóð að regnbogafáninn yrði málaður aftur á tröppurnar um leið og færi gæfist, tækifærið var gripið í góðviðrinu í dag.
Regnbogafáninn mættur á tröppur Grafarvogskirkju á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd