Ekkert verður úr fyrirhuguðu áætlunarflugi fyrirtækisins Niceair frá Akureyrarflugvelli á næstu mánuðum. Framkvæmdastjóri segir ákvörðunina erfiða en óvissa í alþjóðastjórnmálum og hækkandi eldsneytisverð hafi sett strik í reikninginn.Um þetta fjallar Akureyri.net.It's nice to comeback - það er næs að snúa aftur. Þetta var yfirskrift blaðamannafundar í Flugsafni Akureyrar um miðjan desember. Þar kynnti þýskur athafnamaður áform sín um millilandaflug frá Norðurlandi og endurreisn flugfélagsins Niceair.Upphaflega flaug Niceair milli Akureyrar annars vegar og Danmerkur, Bretlands og Spánar hins vegar - en stöðvaði skyndilega starfsemi og sögðu erlendan samstarfsaðila þeirra, fyrirtækið Hi-Fly, hafa stundað óeðlilega viðskiptahætti sem gerði þeim ómögulegt að halda rekstri áfram. Niceair var t