Tvíbókun hefur orðið á sumum færslum á greiðslukortum viðskiptavina Arion banka og Landsbanka.Þetta kemur fram í tilkynningum í smáforritum bankanna.Í tilkynningu á vef Landsbankans segir að þetta einskorðist við innlendar færslur og að unnið sé að leiðréttingu.„Í einhverjum tilvikum geta viðskiptavinir lent í að eiga ekki heimild á kortunum sínum vegna tvíbókana. Við bendum á að í Landsbankaappinu er hægt að hækka heimild á kreditkortum tímabundið í sjálfsafgreiðslu,“ segir enn fremur. VILLA Í KERFUM RAPYD Samkvæmt upplýsingum fréttastofu má rekja þetta til villu í kerfum Rapyd á Íslandi sem sinna færsluhirslu fyrir greiðslukort bankanna.Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans, segir að Rapyd vinni að lausn og að enginn þurfi að örvænta vegna tvíbókananna.„