Úbreiðsla ebólufaraldursins sem nú geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er sú hraðasta í þekktri sögu veirunnar. Dauðsföll nálgast 1.500 og enn gætu verið nokkrir mánuðir þar til bóluefni verður tilbúið til notkunar.Yfirvöld í Kongó lýstu ebólufaraldrinum formlega yfir 15. maí. Síðan þá hefur Bundibugyo-afbrigði veirunnar breiðst hraðar út í landinu en nokkru sinni fyrr – hraðar en í öllum þeim sextán ebólufaröldrum sem herjað hafa á íbúa þess. ERFITT AÐ SEGJA TIL UM HVENÆR FARALDURINN NÆR HÁMARKI Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Kongó hafa alls 3.360 smit verið staðfest og veiran hefur nú greinst í fimm héruðum í austurhluta landsins.1.487 hafa látist, 45 prósent þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn. Átök á mörgum þeirra svæða sem verst hafa orðið úti hafa torveldað viðbrögð heilbrig