Aðgerðin snerist á „engan hátt“ um hvalveiðar

„Þessi aðgerð í gær snerist á engan hátt um afstöðu til hvalveiða eða hvalveiðar – heldur að tryggja öryggi manna í atvinnugrein sem er lögleg á Íslandi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um aðgerð Landhelgisgæslunnar í gær.Hún segir hana hafa gengið mjög vel. Markmið hennar, að tryggja öryggi sjófarenda og fara að íslenskum lögum, hafi náð fram að ganga.Þorbjörg tekur ekki undir með Paul Watson sem hefur lýst þessu sem milliríkjadeilu.„Hér var í gangi löggæsluaðgerð á hafi úti og með allri virðingu fyrir þeim ágæta manni þá er hann ekki erlent stjórnvald.“Hún segir engan komast upp með að ógna öryggi fólks á hafi úti innan íslenskrar landhelgi í nafni aktívisma.
Aðgerðin snerist á „engan hátt“ um hvalveiðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd