Hamas-samtökin hafa náð samkomulagi við friðarráð Bandaríkjaforseta um aðláta vopn sín af hendi. Samningamaður Hamas segir að samkomulagið sé háð því að Ísraelar standi við sitt.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á Truth Social í gærkvöld að friðarráðið hefði náð sögulegu samkomulagi um algjöra afvopnun Hamas og allra annarra vopnaðra hópa á Gaza.Markmiðið með friðarráðinu, sem Trump stofnaði, er að framfylgja langtímaáætlun um vopnahlé á Gaza.Í viðtali við fjölmiðla segir Ghazi Hamad, einn helsti samningamaður Hamas, að samkomulagið sé háð því að Ísrael standi við skuldbindingar sínar samkvæmt áætlun Bandaríkjanna sem undirrituð var í október. NÍU MÁNUÐIR FRÁ SAMKOMULAGI UM VOPNAHLÉ Skilyrðin fela meðal annars í sér að ísraelskar hersveitir hætti mannskæðum árásum á Pal