Frá því að hætt var að nota 2G- og 3G-símasenda 1. júní hafa komið upp vandamál sem sum voru fyrirséð og önnur ekki. Fréttastofa RÚV hefur fjallað ítarlega um vandamál með neyðarhringingar, uppfærslu á búnaði í öryggiskerfum og lyftum og fleira.Íbúar á landsbyggðinni látið í ljós mikla óánægju með lokun sendanna sem þeir tengja við að símasamband hafi versnað. Austurland virðist hafa farið sérstaklega illa út úr henni.Í Austurglugganum er rætt við fjölda íbúa í dreifbýli á Austurlandi sem allir hafa sömu sögu að segja: Símasambandið er verra eftir að slökkt var á sendunum. „Núna er símasambandslaust á bænum, nema við getum hringt í gegnum nettenginguna okkar. Ef eitthvað kæmi upp á þyrftum við austur fyrir Grímsá til að komast í tryggt samband,“ segir Sigríður Benediktsdóttir, bóndi á Flög