Brunavörnum Suðurnesja barst tilkynning um alelda bíl skömmu fyrir klukkan eitt í dag.Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri segir að slökkviliðsmenn hafi verið búnir að slökkva eldinn um korteri eftir að útkallið kom. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi. Beðið er eftir því að bíllinn verði fjarlægður og þá getur hreinsunarstarf hafist. Bíllinn brann við smábátahöfnina við Grófina.Að sögn Eyþórs urðu engin slys á fólki. Hann veit ekki hvort bíllinn hafi verið á ferðinni þegar eldurinn kviknaði.Hann segir að viðbragð hafi ekki verið mikið vegna eldsins. Þó er búið að kalla út auka mannskap hjá Brunavörnum Suðurnesja vegna mikils annríkis í dag, þá sérstaklega í sjúkraflutningum.