Veiðimenn verða á vakt í Mosfellsbæ alla helgina

Aðgerðahópur er enn við störf í Mosfellsbæ og veiðimenn verða á vakt alla helgina.Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri, segir að brugðist sé við öllum ábendingum sem berast.Minka er enn leitað eftir að hundruð, jafnvel þúsundir, sluppu úr loðdýrabúi í Mosfellsdal í fyrradag. ENGIN STAÐFEST TILFELLI UM MINKA Í BYGGÐ Hilmar segir að nýliðin nótt hafi verið tíðindalítil og að ástandið sé að róast.„Og erum að fá fáar ábendingar inn á ábendingasíður hjá Mosfellsbæ. Sem betur fer eru engin staðfest tilfelli í byggð.“Um tólf þúsund dýr voru í búinu.Ekki liggur fyrir hve mörg hafa verið drepin eða hvað mörg eru komin aftur í hús.Hilmar segir ástandið vera betra en hann óttaðist í fyrstu og áhyggjur af áhrifum á lífríkið hafi dvínað.„Já, ég myndi segja það. En maður skal aldrei segja aldrei. Við bara
Veiðimenn verða á vakt í Mosfellsbæ alla helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd