Matvælastofnun hefur kært brot á lögum um dýravelferð til lögreglu vegna innbrotanna í Reykjabúið og svínabú Stjörnugríss fyrr á árinu.Þetta staðfestir Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir sem segir mjög líklegt að það verði einnig gert vegna innbrotsins á loðdýrabúið Dalsbú í vikunni.„Við munum skoða lögregluskýrslu og taka afstöðu til henna – en út frá þeim upplýsingum sem við vitum er augljóst að það er búið að brjóta á velferð fjölda dýra,“ segir Þóra. LÖGREGLA RANNSAKAR BROT Á DÝRAVELFERÐ ÞEGAR MAST KÆRIR Lögregla rannsakar ekki brot á lögum um velferð dýra nema að undangenginni kæru frá Matvælastofnun. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir það að tvö ólík yfirvöld rannsaki eða jafnvel refsi fyrir sama brotið.Í brotum sem ekki teljast meiriháttar hefur Matvælastofnun heimil