Rannsókn lögreglu á innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal stendur enn yfir. Ummerki benda til þess að fleiri en einn kunni að hafa verið að verki en það hefur ekki verið staðfest. Á sama tíma hefur ástandið í dalnum róast og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð.