Landhelgisgæslan veitti skipinu Bandero eftirför í gærkvöldi eftir að áhöfnin neitaði að stöðva skipið að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Áhöfnin hafði sýnt ógnandi tilburði við íslenska sjómenn innan 12 mílna landhelgi landsins og stofnaði siglingaröryggi og mannskap í hættu.