„Þarna unnu menn eins og einn maður,“ segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, um aðgerð gæslunnar í samstarfi við sérsveitina við það að taka yfir skipið Bandero eftir að það hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi. Að hans sögn gekk aðgerðin, sem var erfið, skínandi vel.