Rafmagnstruflanir fyrirhugaðar á Tröllaskaga og við Eyjafjörð

Aðfaranótt fimmtudagsins 6. ágúst spennusetur Landsnet Dalvíkurlínu 2. Til að hægt sé að vinna við verkið þarf að taka Dalvíkurlínu 1 úr rekstri á meðan.Af þeim sökum verður rafmagnslaust í Dalvíkurbyggð, það er að segja á Dalvík, í Svarfaðardal, Skíðadal og í Hrísey, í allt að fjórar klukkustundir.Gera má ráð fyrir stuttum rafmagnstruflunum áður en vinna hefst og eftir að henni lýkur á Ólafsfirði, Árskógsströnd og Grenivík.Í tilkynningu frá Rarik segir um rafmagnsleysið í Dalvíkurbyggð og Hrísey:„Rafmagnslaust verður í Dalvíkurbyggð og í Hrísey frá kl. 00:05 til kl. 04:05 aðfararnótt fimmtudagsins 6. ágúst. Rafmagn kann þó að koma á í stuttan tíma meðan á prófunum stendur. Ekki skal líta á slíka tímabundna innsetningu sem merki um að framkvæmdinni sé lokið og viðskiptavinir eru beðnir um
Rafmagnstruflanir fyrirhugaðar á Tröllaskaga og við Eyjafjörð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd