„Þetta var eins og í James Bond mynd“

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að ekki hafi verið annað í stöðunni en að yfirtaka skipið Bandero í gærkvöldi eftir að það sigldi án heimildar inn í íslenska landhelgi, ógnaði áhöfn Hvals 9 og skipverjar neituðu ítrekað að fylgja fyrirmælum.„Þarna skiptir engu máli hvað mönnum finnst um hvalveiðar. Þetta eru íslenskir hagsmunir, þetta er íslensk lögsaga, þetta eru íslenskir sjómenn,“ segir Georg.Hann segir aðgerðina hafa verið hættulega.„Þetta var eins og í James Bond mynd ef svo má segja.“Landhelgisgæslan naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra sem Georg segir hafa gengið vel.„Þessi mannskapur vann eins og einn maður að þessu verki.“
„Þetta var eins og í James Bond mynd“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd