Hátíðir í öllum landshlutum og sólskin í kortunum

Stærsta skemmtanahelgi ársins er runnin upp og þessa verslunarmannahelgina er úr nógu að velja. Fjölbreytta dagskrá er að finna í öllum landshlutum og flestir ættu að sjá til sólar, þó það gæti orðið heldur dimmara yfir Austur- og Norðurlandi. SUÐVESTURHORNIÐ: * Innipúkinn verður í Reykjavík * Og lokahelgi Hjarta Hafnarfjarðar. * Einnig eru nokkrir smærri viðburðir á höfuðborgarsvæðinu eins og Brekkusöngur Regínu Óskar og Svenna í Salahverfi í Kópavogi. SUÐURLAND: * Eins og venjulega má reikna með fjölmenni á hina sívinsælu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Og ef rætist úr veðurspánni verður fínasta veður þar um helgina. Þar verða fastir liðir: Stórtónleikar, brekkusöngur, blys, varðeldur og skemmtidagskrá um alla eyju. * Bæjar- og fjölskylduhátíðin Flúðir um Versló verður um helgina
Hátíðir í öllum landshlutum og sólskin í kortunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd