Fjögur lík hafa fundist eftir snjóflóð í norðurhluta Pakistan þar sem tíu manns úr alþjóðlegum fjallgönguleiðangri er saknað. Leiðangurinn var undir forystu hins þekkta bresk-nepalska fjallgöngumanns Nirmal Purja, sem meðal annars varð fyrstur manna til að klífa K2 að vetri til.