Um 50 þúsund flótta- og förufólk hefur komið frá Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta á norðurodda Marokkós undanfarna daga. Að minnsta kosti átján hafa látist á leiðinni. Stjórnvöld á Ítalíu og í Finnlandi vilja vísa Spáni úr Schengen-samstarfinu vegna ástandsins.Ceuta og Melilla, önnur spænsk hólmlenda í Norður-Afríku, eru einu landamæri Evrópusambandsins við Afríku á landi. Rúmlega 85 þúsund manns búa á Ceuta og skyndileg koma tugþúsunda manna hefur því sett mikinn þrýsting á innviði borgarinnar. FYLGDARLAUS BÖRN Á MEÐAL FLÓTTAFÓLKS Fólkinu hefur tekist að komast yfir landamærin með því að synda um fimm kílómetra leið yfir Marokkó, eða með því að klifra yfir háar landamæragirðinar.Þúsundir hafa þurft að sofa undir berum himni, í almenningsgörðum og á gangstéttum, þar sem ekki er n