Aðstæður varasamar fyrir fólk með eftirvagna á sunnan- og austanverðu landinu

Brúin yfir Skaftafellsá. Þar verður hvasst í dag.RÚV / SkjáskotBúast má við hvössum vindstrengjum um sunnan- og austanvert landið í dag. Í athugasemd frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að hviður geti náð 25 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum, milli Skaftafells og Hafnar í Hornafirði og á sunnanverðum Austfjörðum. Aðstæður geta því verið varasamar fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind. „Áfram má búast við hvössum vindhviðum á þessum svæðum á morgun, laugardag,“ segir í orðsendingu frá Vegagerðinni.
Aðstæður varasamar fyrir fólk með eftirvagna á sunnan- og austanverðu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd