Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi

Fólk nýtur blíðviðris á ylströndinni í Nauthólsvík í Reykjavík.Rúv / Ragnar VisageÍ lok annars ársfjórðungs bjuggu 396.500 manns á Íslandi. Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á fjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 253.230 manns en 143.270 á landsbyggðinni. Erlendir ríkisborgarar voru 71.130 eða 17,9% af heildarmannfjöldanum. Þetta kemur fram í tilkynningu Hagstofunnar.1.130 börn fæddust á fjórðungnum og 590 létust. Á sama tíma fluttust 930 fleiri til landsins en frá því. Um mitt ár bjuggu 203.080 karlar á landinu, 193.180 konur og 230 kynsegin eða með aðra kynskráningu.
Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd