Reykjavíkurborg metur nú hvort ráðast eigi í viðhald á stúkunni við Laugardalslaug eða rífa hana. Borgin reynir að hafa hraðar hendur í málinu þar sem brýnt er að fá niðurstöðu sem fyrst. Þetta segir Bjarni Guðjónsson, formaður íþrótta- og útilífsráðs Reykjavíkurborgar.