34 létust í sprengingu í kolanámu

Björgunaraðgerðir standa enn yfir á vettvangi.AP / Fazal Tawab34 eru látnir eftir sprengingu í kolanámu í suður Pakistan í gær. Björgunarfólk leitar enn námuverkamanna sem er saknað en yfirvöld hafa ekki greint frá hversu margra er saknað. Talið er að metan hafi valdið sprengingu í námunni sem staðsett er í Sorange, í um 50 km fjarlægð frá Quetta.Námuslys eru algeng í Pakistan, sérstaklega í Balochistan og verkalýðsfélög hafa kallað eftir því að bætt verði úr öryggismálum í námuvinnslu. Balochistan er fátækasta hérað Pakistan en ríkt af auðlindum líkt og kolum, gulli og kopar.
34 létust í sprengingu í kolanámu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd