Úkraínski herinn gerði árás á dreifingarstöð netverslunarinnar Wildberries í Volgograd í gær. Enginn særðist í árásinni en eldur kviknaði í byggingunni, segir í færslu sem netverslunin birti á Telegram.Úkraínuher hefur gert nokkrar árásir á Wildberries undanfarið. Fyrsta árásin var gerð á vöruhús netverslunarinnar í Tambov 18. júlí en átta slösuðust í þeirri árás.Á fimmtudaginn greindi fyrirtækið frá því að einn hafi særst og yfir 200 starfsmenn þurfti að yfirgefa vöruhús eftir að eldur braust út eftir drónaárás í vestur Penza-héraði. Þá var önnur árás gerð á vöruhús Wildberries í Sarapul, sem er um 1.100 km austur af Moskvu.Úkraínumenn saka Wildberries um að geyma íhluti í dróna og aðstoða rússneska herinn.