Spænskir hermenn verða sendir til spænsku hólmlendunnar Ceuta á norðurodda Marokkó til að reyna að tryggja öryggi eftir að minnst fimmtán hundruð förufólks komust til borgarinnar yfir landamærin frá Marokkó. Að minnsta kosti 15 drukknuðu við að reyna að komast yfir til Ceuta.Yfirvöld í Ceuta kölluðu eftir aðstoð spænskra yfirvalda til að ná tökum á ástandinu en svo virðist sem landamæraeftirlit hafi brugðist. Móttökustaðir fyrir fólkið eru yfirfullir og margir hafa þurft að sofa á götunni.Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanches, sagði í færslu á X að ríkisstjórnin væri að vinna að því hörðum höndum að ná tökum á ástandinu og vinna með marokkóskum og alþjóðlegum yfirvöldum til að koma ástandinu aftur í eðlilegt horf. VILL AÐ SPÁNI VERÐI VIKIÐ ÚR SCHENGEN Forsætisráðherra Ítalíu, Georgia M