Concacaf hafnar áætlunum Infantinos

Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku, Concacaf, ætlar ekki að samþykkja áform Giannis Infantino forseta FIFA um að selja um 20 prósenta hlut í HM í fótbolta. 41 aðildarsamband innan Concacaf samþykkti á fundi í gær að hafna þessum hugmyndum.Forseti Concacaf er Kanadamaðurinn Victor Montagliani sem er jafnframt varaforseti FIFA.Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta FIFA ná fram að ganga. Concacaf greindi ekki frá áætlunum um það en kallar eftir meira gagnsæi og betri stjórnarháttum innan FIFA.Margir félagar sambandsins lýstu yfir áhyggjum af stuttum fyrirvara fyrir tillögu Infantinos og skorti á umsögn eða samþykki frá stjórnendum FIFA. Þá voru settar spurningar við það að FIFA þyrfti fjármögnun frá einkafjárfestum eftir sög
Concacaf hafnar áætlunum Infantinos

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd