Landhelgisgæslan tók yfir stjórn Bandero

Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, í kvöld, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins. Skipið verður fært til hafnar í Reykjavík.Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 hafi óskað eftir aðstoð fyrr í kvöld þar sem hún taldi öryggi sínu ógnað. Jafnframt hafi skipstjóri Bandero ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar.Fyrr í dag greindu Paul Watson-samtökin frá því að Bandero hefði siglt utan í Hval 9 og sögðu hvalveiðiskipið hafa hætt veiðum og snúið til hafnar. Landhelgisgæslan staðfesti þá að Bandero hefði nálgast Hval 9 og reynt að trufla för þess, en hafði ekki staðfest frásögn samtakanna af árekstri skipanna.Samkvæmt tilkynningu Landhelgisgæslunnar fékk stjórnstöð h
Landhelgisgæslan tók yfir stjórn Bandero

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd