Valur tryggði sér sæti í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir sigur í einvíginu gegn Zrinjski Mostar. Valur vann fyrri leikinn 1-0 og seinni leiknum lauk með 2-2 jafntefli ytra í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði öll mörk Vals. Þessi sigur Valsmanna er virkilega sterkur en Zrinjski hefur náð frábærum árangri í Evrópu undanfarin ár.