Karol Nawrocki, forseti Póllands, hefur undirritað lög sem banna börnum að nota farsíma í grunn- og leikskólum. Pólska þingið samþykkti löggjöfina fyrr í mánuðinum og taka lögin gildi 1. september.Lögin banna nemendum í bæði opinberum og einkareknum grunnskólum að nota farsíma og önnur snjalltæki sem geta miðlað samskiptum eða tekið upp hljóð og myndir. Leikskólabörnum verður einnig óheimilt að koma með eða nota slík tæki á meðan þau taka þátt í leikskólastarfi.Bannið gildir í kennslustundum, frímínútum og annarri starfsemi á skólalóðinni, sem og í námsstarfsemi sem fer fram á vegum skólans utan skólalóðar. UNDANTEKNINGAR VEITTAR Kennari getur veitt undanþágu þegar þörf er á vegna kennslu eða námsmats, þegar nemandi þarf nauðsynlega að hafa samband við foreldra sína eða þegar bráð hætta