Gunnar Þórðarson er látinn.Gunnar var einskonar Paul McCartney- Brian Wilson og Burt Bacharach okkar Íslendinga - líkast mesta tónskáld íslenskra "poppara" frá upphafi.Hann byrjaði kornungur að herma eftir Hank Marvin og Shadows- svo varð hann foringi Íslensku Bítlanna- Hljóma frá Keflavík og skömmu síðar aðal lagasmiður fyrstu hipparokkhljómsveitarinnar – Trúbrots.Hann stofnaði Lonlí Blú Bojs – endurgerði gömul íslensk dægurlög og kallaði það lummur – hann gerði Vísnaplötur með Björgvin Halldórssyni vini sínum – gerði diskó þegar það átti við – 80 ́s progrokk með Eika Hauks – var lykilmaður í Ríó tríó– Guitar Islancio – samdi óperuna Ragnheiði sem er stórvirki -og svo margt margt fleira.Rokkland setti saman nokkur viðtalsbrot þar sem Gunni segir frá.