Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur nálgast hvalveiðiskip Hvals hf. og hefur gert tilraunir til að trufla för þess. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðastjóri hjá Landhelgisgæslunni.Magnús sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.Eftir því sem fréttastofa kemst næst er það skipið Hvalur 9 sem Bandero hefur nálgast. Mbl.is hermir að Bandero hafi verið siglt utan í Hval 9.Í tilkynningu frá Paul Watson samtökunum segir að í kjölfar áreksturs hafi Hvalur 9 hætt veiði og snúið aftur til hafnar. Landhelgisgæslan hefur ekki staðfest það.Landhelgisgæslan hefur sent viðbragð vegna þessa en ekki liggur fyrir hvers eðlis það er eða hve umfangsmikið. Paul Watson samtökin segja að Landhelgisgæslan hafi sent bæði þyrlu og skip.Bandero hefur verið í íslenskri efnahagsl