„Vaxandi verðbólga og hærra vaxtastig koma fram í auknum vaxtatekjum en það er líka tvíeggja sverð vegna þess að það er mikill samdráttur í þjónustutekjum. Óvissa og hátt vaxtastig hafa mjög neikvæð áhrif á fjárfestingarbankarekstur og á þjónustutekjur þeirra. Og sömuleiðis þessi óvissa í efnahagsmálum bæði hérna heima og erlendis.“Þetta segir Snorri Jakobsson, hagfræðingur og greinandi hjá Jakobsson Capital.Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa birt uppgjör fyrir annan ársfjórðung. Hagnaður Íslandsbanka og Landsbanka jókst lítillega á fyrri helmingi ársins samanborið við fyrri helming síðasta árs en minnkaði hjá Arion banka.Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2026 nam 22,1 milljarði króna eftir skatta, segir í tilkynningu frá bankanum, samanborið við 18,3 milljarða króna hagnað á s