Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, er á hælum hvalveiðiskips Hvals hf. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Landhelgisgæslan hefur sent viðbragð vegna þessa en ekki liggur fyrir hvers eðlis það er eða hve umfangsmikið.Magnús sagðist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.