Stjórnvöld Í Íran hafa varað Kýpur og Búlgaríu við að heimila Bandaríkjunum að nota herstöðvar sínar til árása á Íran.Átökin í Mið-Austurlöndum hafa færst í aukana að nýju og Íran og Bandaríkin gert árásir til skiptis.Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að bandarískum herstöðvum í Mið-Austurlöndum og Bandaríkin svarað með þungum árásum á hernaðarinnviði íranska byltingarvarðarins. SEGIR SAMVINNU VIÐ BANDARÍKIN JAFNGILDA ÞÁTTTÖKU Í STRÍÐINU Í símtali utanríkisráðherra Írans við Constantinos Kombos, utanríkisráðherra Kýpur, sagði Aragachi það jafngilda þátttöku í árás ef ríki heimilaði öðru ríki að nota land sitt til að framkvæma fjandsamlegar aðgerðir.Þá hvatti Aragachi stjórnvöld í Búlgaríu til að endurskoða ákvörðun um að heimila bandarískum herflugvélum að nota eina af herstöðvum lan