„Það er full ástæða til þess að bæta símasambandið á algengum ferðamannastöðum á hálendinu,“ segir Hörður Magnússon, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins Útivistar.Hann segir verra símasamband á hálendinu vera mikið til umræðu hjá ferðamönnum og fólki í ferðaþjónustu. Hann vill ekki fullyrða um hvort lokun á 2G og 3G sendum gæti verið orsökin en hann segir hana ekki hafa verið til batnaðar.Símasamband hafi ekki verið sérlega gott fyrir en nú sé tilfinningin að það hafi versnað.Áður hafi yfirleitt verið hægt að fara upp á hól til að ná sambandi en það gangi ekki lengur. Hörður segir fulla ástæðu til að taka þetta alvarlega. Útivist hafi brugðist við með því að taka upp gervihnattasamband í gegnum Starlink-gervihnattakerfið.„Við höfðum áhyggjur af því fyrir að símasamband væri ekki gott á stöðum