Sannfærður um að þeir sömu séu að baki innbrotunum

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, er viss um að þeir sömu og brutust inn í svínabú fyrirtækisins á Kjalarnesi í maí hafi staðið að innbrotinu á Dalsbúi í Mosfellsdal í vikunni.„Ég held að það megi ganga að því vísu, þótt maður sé ekki rannsóknarlögreglumaður,“ segir hann.Innbrotið á loðdýrabúið í vikunni er það þriðja í nágrenni höfuðborgarsvæðisins á nokkrum vikum.Geir bendir á að röð aðgerða sé svipuð í öllum tilfellum. Brotist er inn að nóttu til, skemmdarverk unnin og dýrum hleypt út.„Það er ólíklegt að þetta séu nýir aðilar að verki. Þetta er allt á sama svæði.“ ENGINN KALLAÐUR Í SKÝRSLUTÖKU ENN Lögregla hefur ekki boðað neinn í skýrslutöku vegna innbrotanna á svínabú Stjörnugríss og Reykjabúið enn. Lögreglustöð 4 á höfuðborgarsvæðinu heldur utan um rannsókn málanna auk
Sannfærður um að þeir sömu séu að baki innbrotunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd