Tryggingamiðlunin Tryggingar og ráðgjöf birti rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins.Félagið hefur gert sátt við Fjármálaeftirlitið sem felur í sér sektargreiðslu að fjárhæð 35 milljónir.„Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við tiltekin ákvæði laga nr. 62/2019 og nr. 30/2004. Félagið hefur þegar lokið úrbótum,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. Brotin varða ákvæði í lögum sem er ætlað að tryggja neytendum „öfluga og víðtæka vernd“.„Markmið reglnanna er að neytendur fái réttar, sanngjarnar, skýrar og ekki villandi upplýsingar og geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu eða vátryggingatengdri fjárfestingarafurð sem h