Hátíðardagskrár, vegalengdir og veðurspár eru meðal þess sem fólk tekur með í reikninginn fyrir ferðalög helgarinnar. Um þrír fjórðu landsmanna búa á suðvesturhorninu og þar þarf ekki að fara fet til að skemmta sér um verslunarmannahelgina. ÞURFA EKKI AÐ FARA LANGT Innipúkinn hefst í Reykjavík á morgun og þá er líka lokahelgi Hjarta Hafnarfjarðar. Einnig eru nokkrir smærri viðburðir á höfuðborgarsvæðinu eins og Brekkusöngur Regínu Óskar og Svenna í Salahverfi í Kópavogi.Veðurspáin gerir ráð fyrir mögulegri úrkomu norðan- og austanlands en að sólin láti sjá sig um sunnanvert landið. Á sunnudaginn á að vera blíðskaparveður um allt land.Þeir sem vilja ekki fara of langt geta skroppið á hátíð á Flúðum eða kristilegt kotmót í Fljótshlíð og Norræn döff menningarhátíð er á Selfossi að ógleymdu