Lögreglan á Suðurlandi handtók sex rúmenska ríkisborgara vegna vasaþjófnaðar á ferðamannastöðum undanfarnar vikur.„Þetta eru samanlagt mjög tilfelli og hleypur á töluverðum upphæðum,“ segir Einar Sigurjónsson aðalvarðstjóri á Suðurlandi. Helst sé reiðufé og greiðslukortum stolið af ferðamönnum á fjölsóttum stöðum.Þrír voru gripnir við þjófnað og handteknir við Seljalandsfoss. Þar hefur lögreglan haft aukna viðveru þar sem vasaþjófnaður hefur verið viðvarandi.Hinir þrír voru handteknir á Selfossi eftir að hafa verið eftirlýstir og grunaðir um að vera viðriðnir sömu brotastarfsemi.Fólkinu verður vísað úr landi á grundvelli laga um útlendinga. GRUNUÐ UM AÐ TENGJAST SKIPULAGÐRI BROTASTARFSEMI Lögreglu grunar að þau sem voru handtekin hafi verið atkvæðamikil. Þá er grunur um að þau tengist s