Væri uggandi ef hann væri bóndi

Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir aðspurður að hann væri uggandi ef hann væri bóndi vegna þeirra þriggja innbrota sem hafa verið gerð í ræktunarbú á skömmum tíma.„Auðvitað þurfa [bændur] að vakta sín bú. Maður veit ekkert hvað gerist næst ef þessir menn ganga lausir,“ segir hann. Enn er unnið að því að veiða strokuminka í Mosfellsdal. Hilmar segir færri ábendingar hafa borist um lausa minka í nótt en búist var við.„Ástandið er talsvert betra. Miðað við þessar ábendingar sem bárust eða bárust ekki í nótt teljum við að staðan sé þokkalega góð.“Ljóst er að verkefninu verður fram haldið næstu vikur eða mánuði. „Við munum fylgja þessum mjög vel eftir.“
Væri uggandi ef hann væri bóndi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd