Stjórn Símans hefur boðað til hluthafafundar 20. ágúst. Þar verður kosið um tillögu að nafnbreytingu félagsins. Verði hún samþykkt fær fyrirtækið nafnið Ásar hf.Greint var frá þessum fyrirætlunum í febrúar þegar stjórn félagsins áformaði að sameina Símann, Greiðslumiðlun Íslands, Opin Kerfi og Öryggismiðstöð Íslands undir móðurfélaginu Ásum.Einnig verður kosið um frekari breytingar á samþykktum félagsins, starfskjarastefnu og starfsreglum tilnefninganefndar.„Breytingarnar tengjast í öllum tilvikum áður tilkynntri breytingu á skipulagi félagsins, sem felur m.a. í sér breytingu á nafni félagsins og framsali rekstrareigna til dótturfélags félagsins, Símans Rekstrar ehf,“ segir í tilkynningu Símans. NOKKRAR NAFNABREYTINGAR ORÐIÐ Á SÍÐUSTU ÁRUM Nokkuð hefur verið um nafnabreytingar skráðra f