Bæjarfulltrúa í Bolungarvík er ekki rótt að ábyrgð á hættulegum vegi sé á herðum sveitarfélagsins. Ábyrgð á rekstri vegarins um Bolafjall var færð frá utanríkisráðuneytinu og varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar til Bolungarvíkurkaupstaðar í vor.Kona ók út af veginum við Bolafjall í gær og bíllinn valt um 200 metra niður fjallið. Betur fór en á horfðist og konan var flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði með minni háttar áverka.Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar sinnti viðhaldi vegarins í umboði utanríkisráðuneytisins vegna ratsjárstöðvar á fjallinu. Samningur um að viðhald færi til Bolungarvíkurkaupstaðar var undirritaður í mars. VILL RIFTA SAMNINGNUM Baldur Smári Einarsson, bæjarfulltrúi í Bolungarvík, segist vilja rifta samningnum.„Ég get ekki séð að lítið sveitarfélag eins og Bolungarvíkurka