Fleiri ætla að segja já en nei

53% þeirra sem taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið ætla að segja já á móti 47% sem ætla að segja nei. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Maskína gerði fyrir DV. Afstaðan breytist lítið frá fyrri könnun sem DV birti 13. júní.Þegar allir svarmöguleikar eru bornir saman þá sögðust 13,5% svarenda ekki vita hvað þeir ætluðu að kjósa og 3,8% vildu ekki svara. 43,8% allra svarenda hugðust segja já og 38,9% segja nei.Lítill munur er á afstöðu karla og kvenna.Þegar horft er til búsetu eru Reykvíkingar jákvæðastir í garð aðildarviðræðna, 61,4% þeirra ætla að segja já. Meirihluti íbúa á landsbyggðinni hyggst segja nei. Mest andstaða er á Austurlandi, þar sem 68,2% ætla að segja nei.Mikill munur er á afstöðu ef litið er til stjórnmálaskoðana. 9
Fleiri ætla að segja já en nei

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd