Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að vel hafi gengið að fanga minka sem sluppu úr Dalsbúi í gærmorgun eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Verkefni dagsins í dag sé að fá tölu á þá minka sem sluppu út en þeir kunna að vera í þúsunda tali. Flestir minkanna hafa ekki vogað sér út fyrir öryggisgirðinguna við búið.