Gistinætur á hótelum voru rúmlega 532 þúsund í júní. Þeim fækkaði um 0,4% samanborið við sama mánuð í fyrra. 91% þeirra voru gistinætur erlendra ferðamanna. Þeim fækkaði um hálft prósent á milli ára.Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 49 þúsund sem var 1,1% meira en í júní í fyrra.Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 172 þúsund. Þeim fækkaði um 8,5% á milli ára. Gistinóttum Breta fækkaði sömuleiðis um 3,6%. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Kínverja um 31%. Þær voru 34 þúsund í júní.Mest fjölgaði gistinóttum á Suðurlandi eða um tæplega 15 þúsund. Það er fjölgun upp á 10,9%. Á Norðurlandi fjölgaði þeim um 5,8%.Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði þeim um 16 þúsund eða 6,5. Hlutfallslega varð mest fækkun á Suðurnesjum eða 7,9%.