Stjórnvöld í Póllandi telja rússneska eldflaug hafa farið inn í pólska lofthelgi og hrapað í austurhluta landsins í umfangsmiklum loftárásum Rússa á Úkraínu í nótt. Forsætisráðherra Póllands segir atvikið undirstrika mikilvægi stuðnings stjórnvalda þar í landi við Úkraínu.Um tíu metra breiður gígur fannst á akri nærri borginni Lublin í Póllandi í morgun, um 80 kílómetra frá landamærum í morgun. Íbúar í grennd við akurinn höfðu heyrt háværan hvell og var lögregla því kölluð til. SKUTU UM 20 KH-101 ELDFLAUGUM Í NÓTT Pólsk stjórnvöld telja líklegt að gígurinn hafi myndast þegar rússnesk Kh-101 eldflaug hrapaði. Rússar skutu um tuttugu Kh-101 eldflaugum að Úkraínu í nótt og tvær þeirra voru taldar geta ógnað pólsku landsvæði.Pólsk F-16 orrustuþota var send af stað til að fylgjast með annarr