Dýralæknafélag Íslands segir að slepping minka af Dalsbúi í gær sé „ekkert annað en alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra og á ekkert skylt við dýravernd eða dýravelferð“. Félagið fordæmir harðlega innbort og skemmdarverk sem unnin hafa verið á búum á síðustu mánuðum.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið á Dalsbúi sem innbrot. Eigandi búsins telur að dýraverndunarsamtök standi á bak við verknaðinn. Brotist var inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní og á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum.„Sé markmiðið á einhvern hátt að standa vörð um velferð dýra lýsa slík skemmdarverk gríðarlegu dómgreindarleysi og vanþekkingu þeirra sem að þeim standa. Þetta á bæði við um þau dýr sem sleppt er úr haldi og dýr