Í umræðum um hugsanlega aðild að ESB hefur evran sem gjaldmiðill eða tenging við hana verið rædd. Þótt það sé ekki skilyrði fyrir aðild er það forsenda mikilvægra efnahagslegra umbóta sem vænst er af aðildinni. Sá ávinningur felst í því að losna úr viðjum krónunnar fremur en aðild að ESB og er ekki síður umdeildur en hún. Ókostur við upptöku...